Greinaskil
Nauðsynlegt er að auðkenna greinaskil ótvírætt. Það má gera með tvennum hætti, með því að draga fyrstu línu eftir greinaskil inn um 0,5 sm eða með auknu línubili (um 6 punkta)Ekki er þörf á að draga inn fyrstu línu á eftir fyrirsögnum eða öðrum innskotum sem rjúfa framvindu lesmálsins, t.d. á eftir töflum, myndum, beinum tilvitnunum eða ljóðum.
Til að skilgreina aukið línubil í stílsniðinu venjulegt (normal) í ritvinnslunni Orði er hægri-smellt á stílsniðið og kostuninn modify valinn. Þá opnast gluggi með enn fleiri valkostum þar sem m.a. er hægt að smella á tákn fyrir aukið og minnkað línubil fyrir aftan greinaskil. Ef valið er Bæta við bili á undan efnisgrein (Space before) 6 p[unktar] myndast 6 punkta aukabil í hvert skipti sem þið ýtið á vendihnappinn (enter).