Mikilvægt er að merkja öll verkefni á fullnægjandi hátt á titilsíðu eða efst á fyrstu síðu ef ekki er sérstök titilsíða. Nokkur atriði þurfa að koma skýrt fram á öllum verkefnum, önnur atriði ráðast af eðli verkefnis og hvernig stúdent vill að kennari komi verkefninu aftur til skila.
Til eru ákveðnar reglur um hvernig kápa og titilsíða lokaverkefna á að líta út, en hér verða ekki gefnar ákveðnar reglur um það heldur er mælt með því að hver og einn hugleiði hvað fer vel á síðunni. Sýnishorn af merkingum og tiltilsíðum er að finna í kennslubókum og handbókum um ritun og taka má mið af því hvernig gert er í almennri bókaútgáfu.
Hins vegar er unnt að gefa ákveðnar reglur um hvað þarf að koma fram, hvað skiptir mestu máli og þar með hversu áberandi hvert atriði merkingar á að vera. Staðsetning einstakra atriða í merkingu verkefnis ræðst af smekk.
Þau atriði sem koma þurfa fram í merkingu verkefna eru talin hér. Fyrst eru talin þau sem eiga að vera mest áberandi en síðast þau sem eiga að vera minnst áberandi.