Tölur, greinamerki og önnur tákn
Tölur
Í venjulegu lesmáli fer best á að skrifa lágar tölur, allt að tíu, eða jafnvel tuttugu, með bókstöfum. Sama gildir um heila tugi, hundruð og þúsund. Þó er eðlilegt að skrifa tölur með tölustöfum í hvers konar útreikningum eða ef verið er að bera saman tölur af ýmsu tagi.
Greinarmerki og önnur tákn
Hluti af smekklegum og réttum frágangi lesmáls er skynsamleg og rétt notkun greinarmerkja. Til hefðbundinna greinarmerkja í lesmáli teljast þessi tákn:
. , ; : ? ! ( ) [ ] - – — „ “ ‚ ‘ '
Í sérfræðilegu samhengi eru sum þessara tákna, auk nokkurra annarra, notuð í alveg ákveðinni merkingu. Dæmi um sértákn eru { } /, #, %, * og ~. Gætið þess að nota þessi tákn einungis í viðtekinni og viðurkenndri merkingu.
Auk þessara tákna má í óformlegum textum, á vefsíðum, bloggi og tölvupósti sjá ýmis óhefðbundin tákn og merki, til dæmis :-) og :-( , og &. Þau skal ekki nota í formlegu lesmáli í verkefnum við skólann.
Leiðbeiningar um notkun hefðbundinna greinarmerkja má finna í Lykli að stafsetningu og greinarmerkjum eftir Baldur Sigurðsson og Steingrím Þórðarson (Forlagið). Þær eru byggðar á auglýsingu menntamálaráðuneytisins um það efni. Sjá einnig Stafsetningarorðabókina (2006) og vef Árnastofnunar.