Lesmál á síðu
Lesmál skal fara vel á síðu með hæfilegri blaðrönd (3 sm) á allar hliðar en meira í kjölinn þegar heft er í kjöl. Lengd línu er um það bil 15 sm eða minna. Blaðrönd er ævinlega jöfnuð vinstra megin en ekki er nauðsynlegt að jafna hægra megin.
Lesmál á síðu skal vera um það bil 2000 slög, það er stafir og bil. Miða skal við að nota 12 punkta Times-letur eða Calibri-letur og eitt og hálft eða tvöfalt línubil. Á slíkri síðu eru 23-25 línur ef reiknað er með því að á síðunni sé eingöngu lesmál, hæfilega afmarkað af greinaskilum. Við þessa stærð síðu er miðað þegar talað er um lengd ritgerðar í blaðsíðum. Ef lengd síðu fer fram yfir þessi mörk, línubil er of þétt eða verkefnið er lengra en tilskilið er í verkefnislýsingu getur kennari hafnað því að lesa það.