Titill ritgerðarinnar
Heiti verkefnis eða titill á að vera mest áberandi, gjarnan fyrir miðju og með stærstu letri. Miklu skiptir hvað verkefnið heitir, það á að vera upplýsandi um innihald þess, slá þann tón sem er aðalatriði í viðfangsefni eða málflutningi höfundar. Í kennsluáætlunum eru verkefni stúdenta á námskeiðinu iðulega kölluð verkefni 1, verkefni 2 eða ritgerð. Slíkur titill eru hins vegar ónothæfur á því verkefni sem stúdent leggur fram, nema í mesta lagi sem undirtitill með smáu letri.