Titilsíða og umbúnaður verkefna
Allar merkingar eiga að vera á fyrstu síðu verkefnis. Vel hæfir að hafa sérstaka titilsíðu á verkefnum ef lesmálið er fjórar síður eða meira en á styttri verkefnum er óþarfi að hafa sérstaka titilsíðu.
Merkja skal allar síður með blaðsíðutali neðst – nema titilsíðu, ef um hana er að ræða. Athugið að titilsíðan er fyrsta síða ritgerðar þótt hún beri ekki blaðsíðutal.
Verkefnum skal skilað heftum í horn eða kjöl. Algerlega bannað er að skila verkefnum í plastvösum sem opnast aðeins á einni hlið. Allar umbúðir um verkefni, gormar og þessháttar eru yfirleitt óþarfi. Flestir kennarar eru algerlega á móti því að fá verkefni í plastmöppum eða öðrum umbúðum. Spyrjið kennara ef þið eruð í vafa.