Töflur og myndir
Notið töflur, rit og myndir til útskýringar, til þess að bæta við lesmálið og gera verkefnið ríkara og auðskiljanlegra. Skýringarrit, t.d. kökurit og súlurit, eru iðulega kölluð myndir og tölusett í sömu röð og þær. Töflur eru tölusettar í sjálfstæðri röð. Í lesmáli skal vísa í allar töflur og myndir og útskýra þær. Skýringar með myndum og töflum skulu vera fullnægjandi til að upplýstur lesandi geti áttað sig á meginatriðum án þess að leita skýringa í lesmálinu.
Tafla 1. Númer og heiti töflu er fyrir ofan töfluna. Skýringar við töfluna eru fyrir neðan töfluna og þá oft með smærra letri
Mynd 1. Númer og heiti myndar er fyrir neðan myndina. Skýringar við myndina eru í beinu
framhaldi, oft með smærra letri.
Nánar má sjá um frágang taflna og mynda með því að athuga hvernig gert er í virtum ritrýndum tímaritum.
Í ritvinnsluforritinu Orði eru töflur og myndir merktar svona: Veljið Tilvísanir (References) á efstu tækjaslánni og síðan skipunina Setja inn skýringartexta (Insert Caption). Þá birtist lítið valspjald sem skýrir sig að mestu sjálft. Athugið að þar er unnt að velja um mismunandi tegundir skýringartexta.
Sjá nánari leiðbeiningar um notkun Word 2007 við ritun stærri verkefna.